Við leitum að forritara sem brennur fyrir stafræn viðmót, hefur metnað í að skila vönduðum og endingargóðum vörum í nánu samstarfi við okkar teymi, viðskiptavini og samstarfsaðila. Viðkomandi þarf að vera næmur á notendaupplifun á stafrænum vettvangi, geta unnið sjálfstætt, vera lausnamiðaður og metnaðarfullur fyrir nýjum áskorunum.
Þú værir að stíga inn í áframhaldandi þróun á fjölmörgum verkefnum sem eru í gangi og framundan, mest skrifað í Typescript og Next.js sem framenda.
Kolofon er lifandi vinnustaður með fjölbreytt verkefni. Þar starfa átta sérfræðingar á sínum sviðum sem aðstoða fyrirtæki og stofnanir að ná fram tímalausri, fallegri og umfram allt skilvirkri hönnun. Stofan sérhæfir sig í mörkun, vef- og viðmótshönnun ásamt upplýsingahönnun. Hún var stofnuð í ársbyrjun 2018 og er með aðsetur á Granda.
Við bjóðum meðal annars upp á:
Umsóknir og fyrirspurnir um starfið sendist á atvinna@kolofon.is.